Ótöluð orð |
![]() |
País: Artista: {$artista} Posición: 15º, 34 puntos |
« Here |
Vídeo
Letra
Lítil á sem fjöllin sker
Alltaf ókunnug var mér
Eins og orð sem aldrei sagðir þú mér frá
Mörg þú áttir leyndarmál
Sem ég aldrei fékk að sjá
Líkt og regnbogi sem sífellt flýr mér frá
Og mig langar til að segja sem var aldrei sagt
Þögnin hefur lífið okkar undirlagt
Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð
Segðu mér það muni lægja einhvern dag
Aldrei liti áttum við
Sem gátu málað himininn
En þessa hluti aldrei sagði ég við þig
En skugga tvo við áttum þó
Sem málað gátu dag og nótt
Ég á enn ósunginn söng til þín frá mér
En mig langar til að segja sem var aldrei sagt
Þögnin hefur lífið okkar undirlagt
Alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð
Segðu mér það muni lægja einhvern dag
En mig langar til að segja sem var aldrei sagt
Í huga mínum mörg ótöluð orð
Segðu mér, að leiðir okkar skiljist hér
Segðu mér, segðu mér
Segðu mér að allt sem færði okkur saman sé nú gleymt
Að þúsund nætur hafi gefið ekki neitt
Því alla daga rignir óvissu um þau ótöluðu orð
Segðu mér það muni lægja einhvern dag